Góður vöxtur og lítið um skaða

Sumarhitar og veðursæld sumarið 2025 skilaði sér vel í góðum vexti í Hellisskógi sumarið 2026. Þetta gerðist þrátt fyrir kuldatíð í maí, votviðrasaman júlí og kaldann ágústmánuð. Talsvert kal var í sumum asparklónum í vor. Líklega byrjuðu þær að lifna of snemma. Sumar aspir stóðu lauflitlar í allt sumar en aðrar voru fagurgrænar og uxu vel.

Vaxtarsprotar á grenitrjám voru yfirleitt langir og lítið um toppbrot. Birki, reyniviðir og elritegundir uxu sömuleiðis vel. Lítið sem ekkert var um óværu í birkinu, hvorki birkikemba né birkiþéla til vandræða í sumar og haust.  Mjög lítið bar á asparglittu í sumar hvorki á víðitegundum né öspum og því voru blæaspir óvenju blaðríkar og fengu fallega haustliti.

Mikil blómgun á birki og greni í vor skilaði sér illa í fræmyndun í haust. Kuldatíðin og næturfrostin í maí eiga þar eflaust einhverja sök. Aftur á móti var góð berjaspretta á reynitrjám.

Skólaheimsókn frá Sviss

Þann 15. september tók Skógræktarfélag Selfoss á móti alþjóðlegum hópi nemenda frá “International School of Zug and Luzern” í Sviss (ISZL). Hópur frá þessum sama skóla kom líka í Hellisskóg á síðasta ári og líkaði greinilega vel svo þau komu aftur með 25 nemendur. Fjórir kennarar voru með hópnum. 

Ásamt því að vinna dagstund í Hellisskógi þá vinna þau að skógrækt á Snæfoksstöðum og ofan við Hveragerði.

Nemendurnir plöntuðu 50 um 1 m háum pottaplöntum af ýmsum reynitegundum og nokkrum broddhlynum, meðfram göngustíg í norðvestur hluta Hellisskógar. Jafnframt fengu þau fræðslu um tré og skógrækt á Íslandi. Flottur hópur og skógræktarfélagið þakkar kærlega fyrir vinnuna.

Plöntun í ágústlok.

Skógræktarfélagi Selfoss fékk talsvert af plöntum frá Skógræktarfélagi Árnesinga í júní. Hluta þessara plantna var plantað af unglingavinnuhópi í júlí (rauðelri) en annað var látið bíða til haustsins. Smáum og illa þroskuðum birkiplöntum var komið í vetrargeymslu og munu þær bíða næsta sumars (7 bakkar, 469 plöntur).


Mánudaginn 31. ágúst hóaði formaður saman nokkrum röskum félagsmönnum til að planta 400 plöntum af sitkagreni og blágreni. Plönturnar voru kröftugar og einstaklega fallegar. Þær komu frá Sólskógum. Plantað var í jaðra mýra og mela framan við Réttarklett.
Verkið gekk mjög vel og væntanlega verður lifum góð og þá munu vaxa upp fallegar þyrpingar af blágreni og sitkagreni á þessu svæði.

Trjám stolið úr Hellisskógi

Enn og aftur er trjám stolið úr trjásöfnum í Hellisskógi. Þetta er orðið árvisst vandamál. 

Að þessu sinni var stolið Virginíuhegg, Garðahlyn og Hrossakastaníu úr trjásafni innarlega í skóginum. Trén voru rifin upp og fjarlægð og ekki merki um að notuð hafi verið verkfæri. Trjánum var plantað þarna fyrir þremur árum, voru komin með góða rót og uxu vel.

Stuldurinn hefur átt sér stað um eða rétt fyrir helgina 10. – 11. júlí.

Hér uxu falleg tré sem nú eru horfin

Fyrr í sumar voru tré rifin úr beði við Sundhöllina og í Miðbænum á Selfossi. 

Trjástuldur er einnig vandamál á skógræktarsvæðum, í þjóðskógum, almenningsgörðum og útivistarsvæðum víða um land.

Því miður eru sumir svo ómerkilegir að þeim finnst ekkert að því að stela sér trjám frá öðrum og planta í garðinn sinn. 

Ekki er ósennilegt að trjánum hafi verið plantað í garð eða við sumarbústað. Sumir telja að þarna séu að verki verktakar sem sjá um að fullgera lóðir fyrir almenning eða fyrirtæki.

Trén á sínum stað í júní 2026.

Umfjöllun um trjástuldinn á Facebook siðu formanns Skógræktarfélags Selfoss hafði mikil áhrif. Í kjölfarið voru fréttaviðtöl bæði á RÚV og Sýn og víðar á samfélagsmiðlum.

Ef einhver hefur upplýsingar um afdrif trjánna þá endilega látið vita.

Meðfylgjandi eru myndir af trjánum fyrr í sumar og af svæðinu eftir stuldinn.

Virginíuheggur og Garðahlynur nokkrum dögum fyrir stuldinn.
Hrossakastanían nokkrum dögum fyrir stuldinn

Plöntun í júlíbyrjun

Vinnuflokkur frá Vinnuskóla Árborgar plantaði 540 rauðelriplöntum í reiti ofan við Helli 2. júlí.
Þar er talið hentug land fyrir rauðelriskóg. Land var tætt fyrir 4 árum og er núna hæfilega vel gróið fyrir plöntun.

Félaginu áskotnaðist talsvert magn af rauðelri, birki, sitkagreni og blágreni seinni hluta júní og ljóst að þetta er meira en virkir félagar í skógræktarfélaginu ráða við. Þess vegna var gripið til þess ráðs að fá unga og hressa unglinga verkið. Þau leystu plöntunina vel af hendi.
Líklega verður boðað til fleiri vinnuferða í Hellisskóg í sumar enda enn nóg eftir af plöntum.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá plöntuninni.

Brúarvinnuflokkurinn lagfærir Hellisbrú

Félagar úr gönguhópi / Bruarvinnuflokki Ingva Rafns óku trjákurli í blautustu hluta Hellisbrúar framan við Réttarklett í Hellisskógi fimmtudaginn 4. júní. Kurlið fengu þeir hjá Skógræktarfélagi Árnesinga á Snæfoksstöðum.


Notast var við litla gröfu, tvö fjórhjól og þrjár kerrur við verkið enda gekk það fljótt og vel.
Áður hafði Brúarvinnuflokkurinn ekið kurli og möl í aðra hluta Hellisbrúar. Hellisbrúinn verður betri með hverju ári sem líður og veitir ekki af því gönguleiðin nýtur sívaxandi vinsælda hjá gestum skógarins.

Skógræktarfélag Selfoss þakkar Brúarvinnuflokknum kærlega fyrir vel unnin störf í Hellisskógi og Skógræktarfélagi Árnesinga fyrir kurlið.

Plantað í Hellisskóg

Fyrsta vinnukvöld sumarsins var miðvikudaginn 3. júní. Plantað var 500 ársgömlum rauðelriplöntum (bakkaplöntur) í norðausturhluta Hellisskógar. Svæðið er blaut og litlar lækjarsitrur einkenna svæðið. Plantað var gisið í jaðra mesta votlendisins. Rauðelri er talið besta trjáplantan í slíkt land. Eldri rauðelriplantanir í blautt mýrlendi lofa góðu.


Tíu félagsmenn mættu í plöntunarvinnuna.
Eftir vinnuna var boðið uppá smá kvöldhressingu í brekkunni framan við Hellinn.

Vinnukvöld 3. júní 2026

Stjórn Skógræktarfélags Selfoss hefur ákveðið að hafa fyrsta vinnukvöld ársins í Hellisskógi miðvikudaginn 3. júní kl. 20. Áætlað að verkið taki um eina klukkustund.

Mæting við Hellinn. Plantað verður rauðelri við eystri skíðabrautina í norðausturhorni Hellisskógar.

Boðið verður uppá veitingar í Hellinum að lokinni vinnu.

Góð reynsla er komin á rauðelri /svartelri sem plantað var sem smáplöntum sumrin 2023 og 2024. Lifun er góð og lítið um kal.
Rauðelrið virðist henta vel í mjög blautt land.

Gróskulegar rauðelriplöntur gæjast upp úr sinunni 28. maí 2026. Plantað haustið 2023.
Rauðelri í Hellisskógi 28. maí 2026. Plantað haustið 2023.

Aðalfundur

Aðalfundur Skógræktarfélags Selfoss var haldinn í Mörkinni, Grænumörk á síðasta vetrardag 22. apríl.
Auk hefðbundinna aðalfundastarfa var Hermann Ólafsson með kynningu á skipulagi á nýju skógræktarsvæði og tjaldstæði sunnan nýja Suðurlandsvegarins. Þar mun skógræktarfélagið koma að plöntun og gerð skjólbelta. Einng var kynnt aðkoman að nýju brúnni og undirgöngum við Stekkjarholt.
Frágangur og ásýnd meðfram Suðurlandsveginum og brúnni skipta miklu máli og þar reynir á skógræktarfélagið að vanda vel til verka.

Stjórn Skógræktarfélags Selfoss í maí 2026. Örn Óskarsson formaður, Hermann Ólafsson gjaldkeri, Snorri Sigurfinnsson ritari, Björgvin Örn Eggertsson og Hlíf Böðvarsdóttir meðstjórnendur.
Frá aðalfundinum 22. apríl 2026. Ljósmynd: Gunnar Sigurgeirsson

Aðalfundur 2026

Aðalfundur Skógræktarfélags Selfoss er miðvikudaginn 22. apríl 2026 kl 20:00 í Mörkinni (stóra salnum í Grænumörk – gengið inn að austanverðu).

Dagskrá:

  • Venjuleg aðalfundarstörf.
  • Hermann Ólafsson mun kynna viðbót við skógræktarsvæðið og aðlögun að nýja suðurlandsveginum.

    Allir eru velkomnir.