Fræðslumyndbönd

Pálmar Örn Guðmundsson er íþróttafræðingur, tónlistarmaður, knattspyrnuþjálfari, formaður Skógræktarfélgs Grindavíkur og margt fleira. Hann hefur undanfarin ár farið vítt og breytt um landið og tekið upp myndbönd um skóga. Hann birtir efnið á vef sínum Skógurinn – Forests in Iceland

Síðastliðið sumar kom hann í Hellisskóg og tók þar viðtal við Örn Óskarsson formann Skógræktarfélags Selfoss ásamt því að skoða skóginn. Formaðurinn gerði sitt besta nýkominn úr aðgerð á báðum augum og líklega tókst honum að gera efninu nokkuð góð skil enda vel kunnugur skóginum.

Þetta varð efni í tvo þætti hjá Pálmari.

Hellisskógur-fyrri þáttur

Hellisskógur-seinni þáttur

Björgvin hlaut verðlaun

Björgvin Örn Eggertsson hlaut hvatningarverðlaun skógræktar 2026. Verðlaunaafhending fór fram í Garðyrkjuskólanum á Reykjum þann 21. mars á Alþjóðlegum degi skóga.

Ljósmynd Vilborg Eiríksdóttir
Ljósmynd Vilborg Eiríksdóttir

Björgvin hefur lengi verið stjórnarmaður í Skógræktarfélagi Selfoss og var formaður árin 1999-2000 og aftur 2006-2018.  Hann hefur líka verið í stjórn Skógræktarfélags Árnesinga og er núna varaformaður þar. Hann hefur séð um grisjun í Hellisskógi um árabil.

Stjórnarfundur í Hellisskógi

Björgvin er brautarstjóri Skógar og náttúru í Garðyrkjuskólanum ásamt því að vera forsvarsmaður  Endurmenntunar Græna geirans. Hann hefur annast fræðslu og verkefni sem snúast um umhirðu, plöntun, snyrtingu og skógarhögg.

Alþjóðlegur dagur skóga 2026

Í dag er alþjóðlegar dagur skóga 2026. Núna er áhersla Sameinuðu þjóðanna á “Skógarnir og hagkerfin – Skógar tákna tækifæri”

https://www.youtube.com/watch?v=fK83s1EXTf4…

Þá er vel við hæfi að birta nokkrar myndir af efnilegum Balkanfurum í Hellisskógi (Pinus peuce) einnig kölluð silkifura og makedóníufura). Þessi tegund er ættuð af Balkanskaga og vex þar hátt uppi í fjöllum (yfir 1000 m hæð).

Sökum hlýnandi loftslags gætu þessar furur átt erfiða framtíð í upprunalöndum sínum á Balkanskaga (komast ekki hærra upp) og því er nauðsynlegt fyrir framtíð tegundarinnar að finna hentug vaxtarsvæði annarsstaðar í heiminum eins og t.d. á Íslandi.

Nýji Suðurlandsvegurinn

Vegagerð um Hellisskóg gengur vel og samkvæmt áætlun. Verkið hófst í desember 2024 og áætluð verklok eru árið 2028. Ótrúlega lítil röskun hefur verið á umferð fólks um Hellisskóg það sem af er framkvæmdatímanum en líklega mun aðgengi verða takmarkað hefðbundna leið í skóginn næsta sumar þegar brúargólfinu verður komið fyrir.

Greiðfært verður fyrir akandi og gangandi undir brúna með ánni þegar allt verður tilbúið. Enn er óljóst um undirgöng fyrir gangandi undir vegin ofan við Hellisholt. Undirgöng fyrir bílaumferð verða við steypustöðina og þaðan vegur inn að Hellinum. Í framtíðinni mun sú leið verða aðal inngangurinn fyrir bílaumferð inn í skóginn.

 Myndirnar eru teknar í mars 2026.