Þann 1. október 1985 fyrir 40 árum var undirritaður samningur á milli Skógræktarfélags Selfoss og Selfossbæjar um skógræktarsvæði í landi Hellis norðan Ölfusár. Síðan þá hefur verið unnið ötullega að skógrækt á svæðinu og nú er Hellisskógur orðin sannkölluð paradís fyrir þá sem unna hreyfingu og útivist í fallegu, skjólgóðu, skógivöxnu landi.
Í tilefni af þessum tímamótum verður efnt til útivistardags í skóginum laugardaginn 4. október n.k. kl. 11-14. Þar verður boðið upp á ýmsa afþreyingu og útivist fyrir unga sem aldna, s.s. göngu um skóginn undir leiðsögn, skokk með hlaupahópnum Frískum flóamönnum, ratleik í skóginum ásamt fræðslu um fugla í og við Helliskóg. Hátíðinni líkur svo með grilluðum pylsum, gosi, kaffi og kleinum.
Laugardaginn 20. september var hátíð á árbakkanum við Jóruklett á Selfossi. Þá útnefndi Skógræktarfélag Íslands sitkagrenitréð á Jórukletti tré ársins 2025. Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, flutti opnunarávarp og fjórir félagar úr Lúðrasveit Selfoss blésu í lúðra.. Formaður Skógræktarfélags Árnesinga, Hreinn Óskarsson, flutti erindi ásamt bæjarstjóra Árborgar, Braga Bjarnasyni. Einnig ávarpaði Hafberg Þórisson í Lambhaga samkomuna en Lambhagi er styrktaraðili Trés ársins.
Hvernig sitkagreni komst í Jóruklett eða hver gróðursetti það þar virðist ráðgáta. Því gæti hafa verið plantað eða fræ fokið út í eyna. Það eina sem er fyrir víst er að þarna stendur það og dafnar með ágætum; eitt og sér.
Skógfræðingarnir Björn Traustason og Aðalsteinn Sigurgeirsson gerðu mælingar á trénu og tóku sýni. Samkvæmt mælingum var tréð 9,7 metrar að hæð. Þvermál bolsins í brjósthæð (1,3 m) var 37,5 cm.
Björn Traustason og Aðalsteinn Sigurgeirsson rannsökuðu tréð.
Teknir voru tveir borkjarnar af sitkagreninu, annar í brjósthæð og hinn í hnéhæð en hvorugur hitti inn í merg. Því var ekki hægt að segja með vissu hversu tréð var gamalt. Eftir á voru borkjarnarnir rannsakaðir af Ólafi Eggertssyni árhringjasérfræðingi. Líkt og áður segir þarf borkjarni að vera tekinn sem næst jörðu og liggja þráðbeint inn að merg til að hafa fullvissu um aldur trés. Það átti ekki við í þessu tilviki en af sýnum að dæma má reikna með að tréð sé frá árinu 1969 og sé því 57 ára gamalt. Líklega er það eldra miðað við stærð trésins á mynd frá 1974. Gæti verið frá því um 1960.
Mynd af Jórukletti frá sumrinu 1974. Þar sést tréð í holunni sinni. Ljósmynd: Örn Óskarsson
Á degi íslenskrar náttúru 16. september tók Skógræktarfélag Selfoss á móti alþjóðlegum hópi nemenda frá “International School of Zug and Luzern” í Sviss. Nemendurnir plöntuðu 50 plöntum af ýmsum tegundum meðfram göngustíg í ofanverðum Hellisskógi. Jafnframt fengu þau fræðslu um tré og skógrækt á Íslandi. Flottur hópur og skógræktarfélagið þakkar kærlega fyrir vinnuna.
Í sumar vann flokkur frá unglingavinnunni á Selfossi að stígagerð í Hellisskógi. Borin var mulnigur í stíg sem liggur inn í skóginn ofan við Hellisgil. Þar er fyrirhugað að setja upp fræðsluskilti um tré og skógrækt. Hópurinn bar einnig möl í stíginn með ánni frá veiðistaði við stóru raflínuna og upp í Hellisgil.
Örn Óskarsson, formaður Skógræktarfélags Selfoss, leiddi göngu um Hellisskóg, kl. 17. þriðjudaginn 1. júlí. Gangan var hluti af heilsubótar- og fræðslugöngum Garðyrkjufélags Íslands í tilefni af 140 ára afmæli þess í ár. Sautján manns mættu í gönguna.
Eins og venjulega vakti gróskan og tegundafjölbreytnin í skóginum athygli gestanna. Hellisskógur á einnig afmæli á árinu, en 40 ár eru í haust frá því Skógræktarfélag Selfoss fékk úthlutað landi í Hellismýri undir skógrækt. Þar sem áður var trjálaust land er nú fjörtíu árum seinna gróskulegur skógur.
Fimmtudaginn 19. júní kl. 20-22 var plantað í Hellisskóg. Að þessu sinni mættu aðeins sjö í pöntun. Mikil rigningardemba síðdegis dróg líklega kjarkinn úr ýmsum.
Plantað var 120 plöntum af rauðgreni, 70 rauðelri, 35 gráelri og 375 birkiplöntum. Birki för í tætt belti næst Biskupstungnabraut en hitt innar í skóginn. Rauðgreni var plantað á milli tilraunaaspa og elrinu meðfram skurði.
Fimmtudaginn 15. maí kl. 20-21 verður borinn áburður að sitkagreni og öspum austan við Hellinn. Mæting við Hellinn. Áburður og verkfæri verða á staðnum en fólk má gjarnan koma með hentugar fötur undir áburð og munið eftir hlífðarvettlingum. Létt og aðgengileg vinna fyrir alla aldurshópa.
Laufgun trjáa er núna um þremur til fjórum vikum fyrr á ferðinni en í meðalári. Á ferð um Hellisskóg 7. maí kom í ljós að flestir reyniviðir, nema alpareynir voru allaufgaðir. Flest asparkvæmi voru laufguð, nema t.d. kvæmið Brekkan. Flestar elritegundir eru komnar með smáblöð og margar birkiplöntur eru allaufgaðar og flestar komnar með smáblöð. Brum á greni, furum og hlynplöntum eru að opna sig en brun eru aðeins farin að þrútna á eik og gullregni.
AlaskaöspBirki
Meira að segja lúpína og hófsóley eru farin að blómstra. Á árunum kringum 1980 var laufgun trjáa metin hér á Selfossi. Þá kom í ljós að birki var komið með smáblöð um 10 júní, mánuði síðar en nú. Nú vonum við heitt og innilega að ekki komi maíhret með roki og kulda, þá gæti gróður farið illa.
Á aðalfundi Skógræktarfélags Selfoss 29. apríl var Höskuldur Tryggvason frá Vegagerðinni með erindi.
Hann fjallaði um stöðu framkvæmda við veg og brú og um framkvæmdaáætlun fyrir næstu mánuði.
Einnig minntist hann aðeins á frágang við veg og brúarenda Hellisskógarmeginn.
Hann taldi að aðgengi að útivistarsvæðinu næstu mánuði yrði óbreytt. Stígar frá aðalbílastæði verða áfram lokaðir en gott aðgengi eftir veginum með ánni út árið.
Það eru gleðitíðindi fyrir okkur skógræktarmenn og þá sem leggja leið sína í Hellisskóg. Fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir lokunum á meðan á sprengivinnu stæði. Nú er hægt að hefja undirbúning fyrir sumarstörf í Hellisskógi.
Grafið fyrir brúarstólpa 30. apríl. Vegurinn er enn opinn og verður það a.m.k. fram á næsta vetur.