Höggormur í Hellisskógi

Af og til berast fréttir af skemmdum af mannavöldum í Hellisskógi. Sem betur fer er slíkt sjaldgæft en engu að síður leiðinlegt þegar það gerist. Nýlega voru 10-15 tré höggin niður í skóginum. Af ummerkjum að dæma var notuð nýleg öxi til verksins. Bláar málningaleyfar sáust í sárunum. Mest voru það víðitré sem urðu fyrir barðinu á skemmdarvarginum í þetta skipti, en einnig nokkur stór birkitré, alaskaösp og reyniviður.
Líklega hefur sami maður höggið birkitré við Gesthús á Selfossi. Ummerkin voru þau sömu.

Þetta er ekkií fyrsta skipti sem öxi er notuð til að eyðileggja tré í Hellisskógi. Fyrir um 10 árum sáust slíkar skemmdir á nokkrum trjám.


Ef einhver hefur orðið var við mann með öxi í Hellisskógi eða í trjáreitum á Selfossi á síðustu dögum er hann vinsamlega beðinn um að láta vita til garðyrkjudeildar Selfossbæjar eða til Skógræktarfélags Selfoss.
Maður með öxi er hvorki á vegum Skógræktarfélagsins né garðyrkjudeildarinnar.
Meðfylgjandi myndir tóku Örn Óskarsson, Hlíf Böðvarsdóttir og Sólveig Ragnarsdóttir í Hellisskógi.