Veglokun í Hellisskógi

Laugardaginn 31. október náði nýja brúin landi norðan Ölfusár eftir að hafa mjakast hægt og örugglega yfir ána undanfarna fimm daga. Vegstæðið við brúarendann í Hellisskógi verður vinnusvæði næstu vikur. Þess vegna er búið að loka veginum upp með Ölfusá fyrir allri umferð (gangandi og akandi). Líklega mun akandi umferð ekki verða hleypt á þessa leið á næstu vikum. Beðið er frekari frétta um hvernig aðgengi gangandi gesta að skóginum verði háttað.

Aðal bílastæðið verður áfram opið og hægt að ganga þar um næsta nágrenni. Þeim sem vilja heimsækja Hellisskóg er einnig bent á bílastæði við Biskupstungnabraut. Þaðan eru gönguleiðir niður í skóginn og að Hellinum.