Bakgarðspíslin 2026

Bakgarðspísl Frískra Flóamanna fór fram í Hellisskógi á föstudaginn langa (3.apríl). Um er að ræða hlaupalegg sem er ein míla og höfðu hlauparar 15 mín til þess að klára hvern legg. Ræst er út í hvern legg á 15. mín fersti. Þetta er í fimmta sinn sem efnt er til þessa atburðar í Hellisskógi og í þetta sinn hlupu 65 manns á öllum aldri.


Byrjað var klukkan 8 um morguninn og hlaupið fram eftir degi. Átján byrjuðu strax kl. 8 en síðan voru nýir þátttakendur að bætast við allan morguninn. Þeir sem hlupu lengst fóru 50 km. Sex fóru þá vegalengd (2 konur og 4 karlar).
Aðstæður voru slæmar, hlaupaleiðin hál og eitthvað um polla á veginum, en veðrið var gott.

Frískir Flóamenn höfðu sem fyrr umsjón með hlaupinu. Íslenska gámafélagið lánaði kamarinn og Almar bakarí gaf kleinuhringi.