Björgvin hlaut verðlaun

Björgvin Örn Eggertsson hlaut hvatningarverðlaun skógræktar 2026. Verðlaunaafhending fór fram í Garðyrkjuskólanum á Reykjum þann 21. mars á Alþjóðlegum degi skóga.

Ljósmynd Vilborg Eiríksdóttir
Ljósmynd Vilborg Eiríksdóttir

Björgvin hefur lengi verið stjórnarmaður í Skógræktarfélagi Selfoss og var formaður árin 1999-2000 og aftur 2006-2018.  Hann hefur líka verið í stjórn Skógræktarfélags Árnesinga og er núna varaformaður þar. Hann hefur séð um grisjun í Hellisskógi um árabil.

Stjórnarfundur í Hellisskógi

Björgvin er brautarstjóri Skógar og náttúru í Garðyrkjuskólanum ásamt því að vera forsvarsmaður  Endurmenntunar Græna geirans. Hann hefur annast fræðslu og verkefni sem snúast um umhirðu, plöntun, snyrtingu og skógarhögg.